Heimasíða FC Hjörleifs: nóvember 2004

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Ágætu forráðamenn Utandeildarliða

Ágætu forráðamenn Utandeildarliða. Að undanförnu hefur stjórnin verið að vinna í vallarmálum vegna keppninnar næsta sumar. Ákveðin lausn er uppi á borðinu sem stjórnin vill ræða við forráðamenn liðanna.
Við hvetjum því alla forráðamenn, eða staðgengla þeirra, sem mögulega geta, að mæta niður í höfuðstöðvar ÍBR niðri í Laugardal, nánar tiltekið Engjavegi 6, 3.hæð. á fimmtudaginn kemur (11.11.04) kl. 19:30. Þar mun stjórnin kynna tillögu varðandi vallarmál. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka þátt í umræðum um þetta mál og önnur ef einhver eru. Þetta er að okkar mati mjög mikilvægt mál og mikilvægt að fá að heyra hvað forráðamenn hafa að segja um þessa tillögu.
Virðingarfyllst,
Stjórn Utandeildarinnar.