Heimasíða FC Hjörleifs: febrúar 2005

laugardagur, febrúar 12, 2005

Fastir æfingartímar

Jæja drengir, þá er víst búið að negla niður fastan æfingartíma fyrir komandi tímabil. Æfingarnar fara fram á gervigrasinu við Réttarholtsskóla. Æfingarnar hefjast á þeim kristilega tíma 20:00 og fara fram alla mánudaga og alla miðvikudaga.

Þá er þetta ákveðið og nú er bara að mæta... sjáumst hressir á mánudaginn á slaginu 20:00.