Heimasíða FC Hjörleifs: september 2006

föstudagur, september 22, 2006

8 - liða úrslit FC Hjörleifur - FC Fame, sunnudag.

Dregið í 8 liða úrslit Gulldeildarinnar
Drátturinn og leiktímar koma hér:
24.9.2006 19:00 TLC Elliði
24.9.2006 20:30 Fc Fame Hjörleifur
25.9.2006 19:00 CCCP Dufþakur
25.9.2006 20:30 Vængir Júpiters Melsted

Leikir fara fram í Egilshöll að því að ég best veit, getur einhver staðf.það?

Hverjir mæta?

mánudagur, september 18, 2006

The framhald

Daginn,

við eigum leik í 8-liða úrslitum 24. eða 25. sept. mér skilst að við getum ekki mætt Duffa né Vængjum þar sem þau voru með okkur í riðli, Duffi vann fyrri leik sinn, á móti Reyni, 7-1 svo þeir eru nánast örugglega á leiðinni áfram og þar með er ólíklegra að við mætum liði úr 3ja sæti en ella, eða er það ekki Úlli (hann var sko í byrjunarliðinu hjá MS í Gettu betur og veit allt).

Er þetta er skrifað er 18. sept. að líða undir lok. Hvað segja menn er ekki a.m.k 2*bolti fyrir leikinn? Höfum við aðgang að Laugardalnum eða hvernig standa þau mál?

Jói, er ekki bara málið að halda námskeið í "ekki"-notkun, til að efla samstöðuna og samræma hugtakanotkun á síðu verðandi meistara?

HGG

laugardagur, september 09, 2006

FC Keppnis - sunnudag

Sælir,

rífum okkur upp eftir þessa djöfuls vitleysu. Við erum bara 4 leikjum frá því að vinna deildina!!!
Sunnudagur 10. Sept. kl. 19:30 - Hjörleifur-FC Keppnis Leiknisvöllur (A) mæting 18:45. Mætum vel og klárum riðilinn í efsta sæti og með stæl.

Kv. Hafliði

þriðjudagur, september 05, 2006

Undanúrslit í bikar...

Fimmtudaginn 7.9.2006 kl. 20:00 Marshall - Hjörleifur Fylkisvöllur mæting 19:15