Heimasíða FC Hjörleifs: október 2008

fimmtudagur, október 16, 2008

Framhaldið

Sælir drengir,

Þá er komið að póstinum sem allir hafa beðið eftir. Spurning póstarins er basically hvað menn vilja gera í vetur og svo í framhaldi af því.

Held að við ættum að skoða þetta af fullri alvöru að tala við þróttarana og gera alvöru úr þessu. Sáum það alveg á seinni hluta tímabilsins að við eigum alveg að geta gert einhverja hluti ef við skellum upp æfingum og bætum við okkur smá mannskap.

Ef við ætlum að reyna eitthvað á þetta þá þurfum við að fara að drífa í þessu en þetta er alveg vinna í kringum þetta.

Best væri að 5-6 manns myndu hjálpast að við að koma þessu á ról, spurning hverjir vilja gera það?

Sem mér dettur í hug eru: Eiki, Hafliði, Óli Erling, Höddi, Valli jr, Egill og svo get ég gert eitthvað héðan frá englandi J

Þá er það bara spurningin vilja menn gera þetta og hverjir eru með?

Kv Hvíta Perlan