Heimasíða FC Hjörleifs: janúar 2010

laugardagur, janúar 30, 2010

Sumarið 2010

Jæja drengz....fyrsti pósturinn á þessu ári whoop whoop ...sms crazy alveg að detta í gang.

Æfingarnar hafa verið flottar í vetur, nýir gæjar að koma sterkir inní þetta.
Framundan hjá okkur er:

áframhaldandi æfingar á mánudögum
æfingaleikir - næsti á föstudaginn gegn Létti
ÍR OPEN - lentum í öðru sæti í fyrra
VISA bikarinn undir ármanns nafninu
Svo utandeildin sjálf þar sem við viljum fara að taka dollur. Sérstaklega þar sem við erum farnir að æfa í fyrsta sinn í mörg ár :)

Við þurfum að redda ýmsu fyrir þetta.

Þurfum nýja bolta - er að bíða eftir svari frá heildsölu JAKO er með contact þar :)
Þurfum stuttbuxur og sokka í settið okkar
Svo kostar utandeildin eitthvað um 150.000
Og við vitum ekki hver kostnaðurinn er nákvæmlega fyrir visa bikarinn.
IR open kostar 40.000

Þess vegna ætlum við að fara að safna fyrir þessu með "félagsgjöldum" í stað þess að rukka eina stóra upphæð eins og við höfum gert síðustu 9 ár.

Þannig þeir sem ætla sér að vera með í sumar eru vinsamlegast beðnir um að leggja 3000 krónur inná reikninginn sem er hér efst uppi til hægri á síðunni :) Fyrir 5.febrúar

Ef það eru einhver peningavandræði á mönnum þá er bara að láta mig vita og við reddum því, ekkert vera hræddir við að spjalla.

Svo vill ég að nýju gæjarnir hendi inn númerunum sínum hérna í comment svo ég geti farið að festa þau í kollinn á mer

P.S ÞEIR SEM GREIDDU 1500 KALL FYRIR JÓL ÞURFA AÐEINS AÐ GREIÐA 1500 KALL NÚNA AÐRIR 3000 ;)

later,
SMS CRAZY - Balli bumba